Ég veit að ég hef ekki bloggað af viti heillengi en ástæðan er þessi vettvangsnámið og er þetta blogg mun mikilvægara heldur en þetta blogg. Síðan er það að sjálfsögðu líffærafræði. Ef að þið skiljið þetta: membra obturatoria og foramen obturatum og síðan corpus á 12. vertabrae thoracacicae (T12) og á fjórar efstu vertabrae lumbales (L1-4) m/ discus vertebralis. (lateral hluta á 12. costa. proc. transv. á vertabra lumbales og nálægasti hluti af os ilium þá megið þið endilega senda þýðinguna á mig svo að ég geti farið að læra undir þetta blessaða próf
Allavega svona eitthvað af viti, það er planið um helgina og á mánudag og þriðjudag að lesa og lesa og lesa. Ef þið viljið forðast það að ég lesi yfir mig þá reyni ég að hafa matartíma á milli kl 12:00 og 13:00 endilega tékkið á mér.
Annars er mest lítið að frétta, vettvangsnámið er bara búið að eiga hug minn allan.
Reyni að koma með eitthvað viturlegt blogg svona þegar ég er búin í líffærafræðiprófinu 5 nóvember, þá ætti ég að fara að geta átt mér pínulítið líf áður en lífeðlisfræðiprófið skellur á 
Var í bíó með Hafdísi á No reservation og hún er nokkuð góð, bjóst reyndar við einhverju öðru og síðan var hún oggu fyrirsjáanleg, jú og kannski svolítið þunn líka. En í heildina séð nokkið góð. Skelltum okkur á Style-inn og ég hef sjaldan verið svona rooosalega södd eftir einn hamborgara, ég eiginlega bara valt út...
Nóg um það, þetta er alls ekki áhugavert blogg, enda ekki mikið áhugavert að gerast í lífi mínu þessa stundina!!! 